FAQ
Er hægt að fá endurgreitt ef maður þarf að hætta við?
Fyrir fundinn er hægt að fá að fullu endurgreitt ef hætt er við tveimur vikum fyrir fund. Eftir það er endurgreitt 80% af andvirði nema ef hætt er við degi áður en formleg dagskrá byrjar þá er ekki endurgreiðsla í boði.
Ég er með ofnæmi/vegan/óþol er tekið tillit til þess?
Já, vinsamlegast skráið það við skráningu
Hvað kostar og hvernig borga ég?
Það ættu að vera greiðsluupplýsingar í forms skjalinu, ef þær hafa farið framhjá þér eða þær voru ekki til staðar þá eru þær einnig hér.
Early bird pakki 19.500kr.
Helgarpakki 21.500kr.
Nýliðapakki 19.500kr.
Stakir viðburðir (innifalið í pakka):
Föstudagspartý 6.500kr.
Fulltrúaráðsfundur 7.500kr.
Laugardagskvöld 9.000kr.
Kt. 490415-0250
Rnr. 0357-22-006749
Vinsamlegast sendið staðfestingu á rt15@rt15.is og ef greiðandi er ekki sá sami og skráði sig að setja nafn í skýringu.
Ég gisti ekki á SEL- Hótel Mývatn. Hvað með morgunmat?
Morgunmaturinn er alltaf á hótelinu. Þú þarft að sýna passann þinn og skrá þig sérstaklega í morgunmat.
Verður gaman?
Já það verður mjög gaman, sérstaklega ef þú kemur með.
Hvað er fulltrúaráðsfundur?
Fulltrúaráð skal halda minnst þrjá fundi á starfsári auk aðalfundar. Forseti boðar til fundar, undirbýr og sendir út dagskrá minnst þremur vikum fyrir fund. Fundir fulltrúaráðs eru löglegir ef 3/4 fulltrúaráðs eru viðstaddir og boðað er til þeirra eins og lög gera ráð fyrir.
Hvernig á ég að hegða mér?
Auðvitað vel, þú ert ekki hálfviti. Mundu að koma vel fram við aðra og bera virðingu fyrir fundarstað og öðrum klúbbum.